Nokia N97 - Um tækið

background image

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til

notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800, 1900 MHz og UMTS 900,

1900, 2100 MHz símkerfi. Þjónustuveitan gefur nánari

upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða

staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,

þ.m.t. höfundarrétt.
Höfundarréttarvörn getur hindrað afritun, breytingu eða

flutning sumra mynda, tónlistar og annars efnis.
Tækið styður nokkrar mismunandi gerðir tenginga. Líkt og

gildir um tölvur hafa vírusar og annað skaðlegt efni áhrif á

tækið. Fara skal með gát við meðhöndlun skilaboða,

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

6

background image

tengibeiðna, við vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal setja

upp og nota þjónustu og hugbúnað frá áreiðanlegum aðilum

sem bjóða upp á nægjanlega vörn gegn skaðlegum

hugbúnaði líkt og Symbian Signed hugbúnað eða hugbúnað

sem hefur staðist Java Verified™ prófun. Þú ættir að íhuga að

setja vírusvarnarhugbúnað og annan öryggishugbúnað upp

í tækinu og tölvum sem tengjast við það.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í einu.

Notkun fleiri en eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif á

afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að það virki

ekki.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður

þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður þriðju aðila í

tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia

hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja

slíkar síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.

Viðvörun:

Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara,

þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar

notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,

PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og 2003). Ekki

er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar

mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók

þess vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má

tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir kunna að líta öðruvísi út í þessum bæklingi en á skjá

tækisins.