Úrræðaleit
Til að sjá svör við algengum spurningum um tækið, sjá
þjónustusíður fyrir vöruna á www.nokia.com/support.
Spurning: Hvert er lykilorðið mitt fyrir læsingar-, PIN-
eða PUK-númerin?
Svar: Sjálfgefinn læsingarkóði er 12345. Hafðu samband við
söluaðilann ef þú gleymir læsingarnúmerinu. Ef PIN- eða PUK-
númer gleymist eða ef ekki hefur verið tekið við slíku númeri
skal hafa samband við þjónustuveituna.
Upplýsingar um lykilorð fást hjá aðgangsstaðaþjónustu, t.d.
netþjónustuveitu eða símafyrirtæki.
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e.
svarar ekki?
Svar: Veldu
Valkostir
>
Sýna opin forrit
og notaðu
valmyndartakkann til að fara að forritinu. Haltu
valmyndartakkanum inni til að opna forritið og veldu
Valkostir
>
Hætta
.
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar séu hrein.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
136
Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir
punktar á skjánum í hvert skipti sem ég kveiki á tækinu?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum
skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa annaðhvort
stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla heldur
eðlilegan hlut.
Spurning: Hvers vegna getur Nokia-tækið mitt ekki
komið á GPS-tengingu?
Svar: Það getur tekið allt frá fáeinum sekúndum upp í nokkrar
mínútur að koma á GPS-tengingu. Það getur tekið lengri tíma
að koma á GPS-tengingu í bíl. Sértu innanhúss skaltu fara út
til að ná betra merki. Sértu utandyra skaltu fara á opnara
svæði. Gakktu úr skugga um að höndin sé ekki yfir GPS-
loftneti tækisins. Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á
sendistyrkinn. Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og
ekki er víst að merki frá gervitunglum berist í gegnum þær.
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns þegar
ég nota Bluetooth?
Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að kveikt
sé á Bluetooth og tækin séu sýnileg. Gakktu einnig úr skugga
um að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé ekki meiri en 10
metrar (33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar hindranir á
milli þeirra.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-
tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið
tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth-
tengingunni í tækinu þínu. Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Bluetooth
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð aðgangsstað fyrir
þráðlaust staðarnet þó svo ég viti að ég er innan
móttökusvæðis hans?
Svar: Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn SSID-kóða.
Þú getur aðeins fengið aðgang að netkerfum sem nota falinn
SSID-kóða ef þú veist kóðann og hefur búið til
internetaðgangsstað fyrir þráðlausa staðarnetið í Nokia-
tækinu þínu.
Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu staðarneti í
Nokia-tækinu mínu?
Svar: Tenging við þráðlausa staðarnetið rofnar þegar þú ert
ekki tengdur, ert ekki að reyna að tengjast við annan
aðgangsstað eða að leita að tiltæku netkerfi. Til að draga enn
frekar úr rafhlöðueyðslu er hægt að stilla Nokia-tækið þannig
að það leiti ekki eða leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í
bakgrunni. Það slokknar á þráðlausa staðarnetinu milli þess
sem leit fer fram í bakgrunni.
Gera skal eftirfarandi til að breyta stillingum bakgrunnsleitar:
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
137
1 Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Þráðl.
staðarnet
.
2 Til að lengja tímann sem líður á milli leitar skaltu stilla
tímann í Leit að símkerfum. Til að stöðva leit í bakgrunni
velurðu
Sýna vísi staðarneta
>
Aldrei
.
3 Breytingarnar eru vistaðar með því að velja
Til baka
.
Þegar
Sýna vísi staðarneta
er stillt á
Aldrei
birtist táknið
fyrir tiltækt þráðlaust staðarnet ekki á heimaskjánum. Þú
getur þó leitað handvirkt að tiltækum þráðlausum
staðarnetum og tengst þeim eins og vanalega.
Spurning: Hvað geri ég ef minnið er fullt?
Svar: Eyddu efni úr minni tækisins. Ef
Ekki er nægjanlegt
minni fyrir aðgerð. Eyddu fyrst einhverjum gögnum.
eða
Lítið minni er eftir. Eyddu einhverjum gögnum úr minni
símans.
birtist á skjánum þegar þú eyðir mörgum atriðum í
einu skaltu eyða einu atriði í einu og byrja á þeim minnstu.
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið fyrir
skilaboðin mín?
Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer,
heimilisfang né tölvupóstfang. Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
og viðeigandi tengilið, og breyttu
tengiliðaspjaldinu.
Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu sem
tækið kemur alltaf á aftur?
Svar: Tækið gæti verið að reyna að sækja
margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni. Til að hindra
tækið í að koma á gagnatengingu velurðu
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarskilaboð
>
Móttaka margmiðlunar
. Veldu
Handvirkt val
til að skilaboðamiðstöðin visti skilaboð sem
verða sótt síðar eða
Óvirk
til að hunsa öll
margmiðlunarskilaboð sem berast. Ef þú velur
Handvirkt
val
mun berast tilkynning þegar ný skilaboð bíða þín á
skilaboðastöðinni. Ef þú velur
Óvirk
kemur tækið aldrei á
tengingu við símkerfið vegna margmiðlunarskilaboða.
Til að láta tækið aðeins nota pakkagagnatengingu ef þú ræsir
forrit eða aðgerð sem þarfnast hennar ýtirðu á
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Stjórnandastill.
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
Ef það kemur ekki að gagni skaltu slökkva á tækinu og kveikja
síðan á því aftur.
Spurning: Get ég notað Nokia-tækið sem faxmótald með
samhæfri tölvu?
Svar: Þú getur ekki notað tækið sem faxmótald. Með því að
nota símtalsflutning (sérþjónusta) getur þú hins vegar beint
mótteknum símbréfssendingum í faxnúmer.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
138
Spurning: Hvernig á að stilla skjáinn?
Svar: Skjárinn er stilltur hjá framleiðandanum. Ef nauðsynlegt
er að endurstilla skjáinn velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Snertiskjár
>
Kvörðun snertiskjás
. Farðu eftir
leiðbeiningunum.