Búa til dagbókaratriði
1 Til að bæta nýju atriði inn í dagbókina skaltu velja
dagsetninguna og velja síðan
Valkostir
>
Nýtt atriði
og
úr eftirfarandi:
Fundur — Bæta við áminningu um fundinn.
Fundarboð — Búa til og senda nýtt fundarboð. Þú þarft
að hafa pósthólf til að geta sent fundarboð.
Minnisatriði — Skrifa almennan minnismiða um
daginn.
Afmæli — Bæta við áminningu um afmæli og aðra
merkisdaga (færslurnar eru endurteknar á hverju ári).
Verkefni — Bæta við áminningu um verkefni sem þarf
að ljúka fyrir tiltekinn dag.
2 Fylltu út alla reitina. Bankaðu á reit til að slá inn texta. Til
að loka innslættinum velurðu .
Hægt er að bæta við lýsingu á færslu með því að velja
Valkostir
>
Bæta við lýsingu
.
3 Veldu
Lokið
til að vista atriðið.
Þegar dagbókartónn heyrist velurðu
Hljóð af
til að slökkva á
honum.
Slökkt er á dagbókartóni með því að velja
Stöðva
.
Til að stilla á blund skaltu velja
Blunda
.
Til að tilgreina eftir hve langan tíma dagbókartónninn heyrist
aftur þegar stillt er á blund velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Tími blunds
.