
Gagnageymslan forsniðin
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Skrifstofa
>
Skráastjórn
.
Þegar gagnageymslan er forsniðin er öllum gögnum eytt úr
henni varanlega. Taka skal öryggisafrit af gögnum sem á að
geyma áður en gagnageymslan er forsniðin. Nota má Nokia
Ovi Suite til að taka öryggisafrit af gögnum á samhæfri tölvu.
Stafræn notkunarréttindi (DRM) geta komið í veg fyrir að sum
afrituð gögn verði sett upp aftur. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um þau stafrænu réttindi sem gilda um efnið.
Til að forsníða gagnageymsluna velurðu
Valkostir
>
Forsníða gagnageymslu
. Ekki skal forsníða
gagnageymsluna með tölvuhugbúnaði, það getur dregið úr
afköstum hennar.
Ekki er tryggt að öllum trúnaðarupplýsingum sem vistaðar
eru í gagnageymslu tækisins sé varanlega eytt þó að hún sé
forsniðin. Við venjulegt forsnið er forsniðið rými aðeins merkt
sem tiltækt pláss og vistfangi til að finna skrárnar á ný er eytt.
Það kann að vera hægt að endurheimta forsniðin eða jafnvel
yfirskrifuð gögn með til þess gerðum tækjum og hugbúnaði.