Höfundarréttur og önnur ákvæði
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-505 er í samræmi við grunnkröfur
og aðrar kröfur sem gerðar eru í tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni
er að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/declaration_of_conformity/.
Nokia, Nokia Connecting People, Nseries, N97, Nokia Original Accessories logo og Ovi eru
vörumerki eða skráð vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er vörumerki Nokia
Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki
eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalinu
öllu er óheimil nema að fyrirfram fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir
stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar og
úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.
Java and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of Sun
Microsystems, Inc.
Portions of the Nokia Maps software are ©1996-2010 The FreeType Project. All rights
reserved.
Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og
án viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa verið kótaðar samkvæmt
staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi og án
viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá
hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar
notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í auglýsingum, innan
fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM
ÞESS UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á GÖGNUM,
TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI
HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að hafa verið búin til og vera í
eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki tengjast Nokia. Nokia á ekki höfundarréttindi eða
hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð
við notendur, virkni þessara forrita eða þeim upplýsingum sem fylgja forritunum eða
efninu. Nokia veitir enga ábyrgð á þessum forritum þriðju aðila.
MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS OG ÞAU KOMA
FYRIR ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ MARKI SEM
HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA
NÉ TENGD FÉLÖG VEITA NOKKURS KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM EÐA
ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI
TIL TILTEKINNAR NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN EINKARÉTTI,
HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA,
ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI,
ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ
UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR
RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM ER ÁN
UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Bakhönnun (e. reverse engineering) hugbúnaðar í tækinu er bönnuð eins og lög segja til
um. Að því marki er þessi notendahandbók inniheldur einhverjar takmarkanir á fyrirsvari,
ábyrgðum og skaðabótaskyldu Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta, skulu þær
takmarkanir einnig ná til sérhvers fyrirsvars, ábyrgða og skaðabótaskyldu leyfisveitanda
Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt
eftir svæðum. Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia-söluaðila þínum.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
144
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og
reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki
samræmast lögum eru óheimilar.
TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er notaður
nálægt viðtökutæki). FCC eða Industry Canada geta krafist þess að þú hættir að nota
símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft aðstoð skaltu hafa
samband við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta af
reglum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda
skaðlegum truflunum; og (2) tækið verður að taka við öllum truflunum sem það verður
fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem
Nokia hefur ekki samþykkt berum orðum geta ógilt heimild notandans til notkunar
búnaðarins.
/Útgáfa 5 IS
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
145