Nokia N97 - Lykilorð

background image

Lykilorð

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir

einhverjum af þessum aðgangsnúmerum.
PIN-númer (Personal identification number) — Númerið

hindrar að SIM-kortið sé notað í leyfisleysi. PIN-númerið (4 -

8 tölustafir) fylgir yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-

númerið er slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað

og þá þarf að slá inn PUK-númerið til að opna það.

UPIN-númer — Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.

USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota í 3G-

farsímum.

PIN2-númer — Númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir sumum SIM-

kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma valkosti

tækisins.

Læsingarkóði (einnig kallaður

öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið hindrar að tækið sé

notað í leyfisleysi. Forstillta númerið er 12345. Hægt er að

búa til og breyta númerinu og láta tækið biðja um númerið.

Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri tækinu.

Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst þarftu að leita til

þjónustuaðila. Þú getur þurft að greiða viðbótargjald og

persónulegum gögnum í tækinu kann að verða eytt. Þú getur

fengið nánari upplýsingar hjá Nokia Care þjónustuaðila eða

söluaðila tækisins.

PUK- og PUK2-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er

nauðsynlegt til að breyta PIN-númeri eða PIN2-númeri sem

hefur verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu

skaltu hafa samband við þjónustuveituna sem lét þig fá SIM-

kortið.

UPUK-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til

að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki með

USIM-kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna sem

lét þig fá USIM-kortið.

IMEI-númer (International Mobile Equipment Identity

number) — Þetta númer (15 eða 17 stafir) er notað til að

auðkenna gild tæki á GSM-símkerfinu. Hægt er að útiloka

tæki, til dæmis stolin, frá aðgangi að netinu. IMEI-númer

tækisins er að finna undir rafhlöðunni.