
Um hugbúnað tækja og uppfærslur forrita
Hugbúnaðaruppfærslur tækja og uppfærslur forrita veita
nýja möguleika og bættar aðgerðir fyrir tækið þitt. Uppfærsla
á hugbúnaði getur einnig bætt afköst tækisins.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
9

Mælt er með að þú takir öryggisafrit af persónulegum
upplýsingum áður en þú uppfærir hugbúnað tækisins.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið meðan á hugbúnaðaruppfærslu
stendur, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er
hægt að nota það að uppfærslunni lokinni og þegar það hefur
verið endurræst. Taka skal öryggisafrit af gögnum áður en
uppfærsla er samþykkt.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar
gagnasendingar (sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða
tengdu hleðslutækið áður en uppfærslan er ræst.
Eftir að þú uppfærir hugbúnað tækisins eða forrit kunna
leiðbeiningarnar í notendahandbókinni að vera úreltar.