
Samnýting hreyfimynda
Notaðu samnýtingu hreyfimynda (sérþjónusta) til að senda
rauntíma hreyfimynd eða myndskeið úr tækinu í samhæft
farsímatæki meðan á símtali stendur.
Kveikt er á hátalaranum þegar samnýting hreyfimynda er
gerð virk. Ef þú vilt ekki nota hátalarann í símtölum á meðan
hreyfimyndir eru samnýttar má einnig nota samhæft
höfuðtól.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta
skal á tónlist á hóflegum hljóðstyrk og ekki halda tækinu
nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.