Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda krefst UMTS-tengingar. Ekki er hægt
að nota samnýtingu hreyfimynda nema með UMTS-símkerfi.
Nánari upplýsingar um þjónustuna, tiltæk UMTS-símkerfi og
gjöld fyrir þessa þjónustu fást hjá þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota samnýtingu hreyfimynda þarftu að
gera eftirfarandi:
•
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir
tengingar á milli einstaklinga.
•
Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu og
sért innan dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Ef þú ferð út fyrir
UMTS-þjónustusvæði meðan samnýting fer fram, þá
rofnar hún en símtalið heldur áfram.
•
Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og
viðtakandinn séu skráðir á UMTS-símkerfið. Ef þú býður
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
40
einhverjum í samnýtingu og tæki viðtakandans er ekki
tengt við UMTS-símkerfi, eða þá að samnýting eða P2P
hefur ekki verið sett upp í því, fær viðtakandinn ekki
boðið. Þú færð villuboð um að viðtakandinn geti ekki
þegið boðið.