
Stillingar
Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og UMTS-
tengistillingar.
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga (P2P) er einnig þekkt undir
heitinu SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-
sniðstillingar verða að vera settar upp í tækinu til að hægt sé
að nota samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá
þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu.
Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða gefið þér upp
nauðsynlegar stillingar.
Til að setja SIP-vistfang hjá tengilið:
1 Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
.
2 Opnaðu tengiliðinn eða búðu til nýjan tengilið.
3 Veldu
Valkostir
>
Breyta
.
4 Veldu
Valkostir
>
Bæta við upplýsingum
>
Samnýta
hreyfimynd
.
5 Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu
notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-tölu í stað
vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað
símanúmer hans, ásamt landsnúmerinu, til að samnýta
hreyfimynd (ef netþjónustuveitan styður það).
UMTS-tengistillingar
Til að koma á UMTS-tengingu:
•
Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að gerast
áskrifandi að UMTS-þjónustunni.
•
Gakktu úr skugga um að UMTS-aðgangsstaðastillingar
tækisins hafi verið rétt valdar. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar um stillingarnar.