
Samnýting
Hægt er að samnýta myndir og myndskeið í samhæfum
albúmum á netinu, á bloggsíðum eða í annarri
samnýtingarþjónustu á netinu. Hægt er að hlaða upp efni,
vista færslur í vinnslu sem drög og halda áfram síðar, og
skoða innihald albúmsins. Það fer eftir þjónustuveitunni
hvaða tegundir efnis eru studdar.
Til að geta samnýtt myndir og myndskeið á netinu þarftu að
vera í áskrift hjá samnýtingarþjónustu. Yfirleitt er hægt að
gerast áskrifandi að slíkri þjónustu á vefsíðu
þjónustuveitunnar. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar, ef þessi þjónusta er notuð. Upplýsingar
um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Mælt er með þráðlausri staðarnetstengingu.
Til að hlaða skrá úr Myndum upp í netþjónustu velurðu
Valmynd
>
Myndir
, viðkomandi skrá og
Valkostir
>
Senda
>
Birta
eða
Samnýta á Ovi
.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
104

Nánari upplýsingar um forritið og þjónustuveitur er að finna
á þjónustusíðum Nokia eða Nokia-síðunni í heimalandi þínu.