
Kortayfirlit
Veldu
Valmynd
>
Kort
.
Velkomin í Kort.
Kort sýna þér hvað er nálægt, hjálpa þér að skipuleggja
leiðina þína og leiðbeina þér þangað sem þú vilt fara.
•
Finndu borgir, götur og þjónustu.
•
Fáðu ítarlegar leiðsöguupplýsingar.
•
Samstilltu uppáhalds staðina þína og leiðir við Ovi-kort
netþjónustuna.
•
Skoðaðu veðurspá og aðrar staðbundnar upplýsingar (ef
þær eru til staðar).
Til athugunar: Við niðurhal á efni eins og kortum,
gervihnattamyndum, hljóðskrám eða umferðarupplýsingum
getur verið um mikinn gagnaflutning að ræða (sérþjónusta).
Ekki er víst að umbeðin þjónusta sé í boði í öllum löndum,
eða á því tungumáli sem valið er. Þjónustan kann að velta á
netkerfinu. Símafyrirtækið gefur nánari upplýsingar.
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og ófullnægjandi að
einhverju leyti. Aldrei skal treysta eingöngu á kort sem hlaðið
hefur verið niður til notkunar með þessu tæki.
Efni á borð við gervihnattarmyndir, leiðbeiningar, veður- og
umferðarupplýsingar og tengd þjónusta er útbúin af þriðju
aðilum sem tengjast ekki Nokia. Efnið kann að vera
ónákvæmt og ófullnægjandi að einhverju leyti og veltur á
framboði. Aldrei skal treysta eingöngu á fyrrgreint efni og
tengda þjónustu.