
Notkun áttavitans
Ef áttaviti er í tækinu snúast bæði nál hans og kortið sjálfkrafa
í þá átt sem efsti hluti símans vísar þegar kveikt er á honum.
Veldu
Valmynd
>
Kort
og
Núverandi staðsetning
.
Kveikt á áttavitanum
Veldu .
Slökkt á áttavitanum
Veldu aftur. Kortið snýr í norður.
Áttavitinn er virkur þegar grænar útlínur sjást. Ef það er
nauðsynlegt að kvarða áttavitann eru útlínur hans rauðar eða
gular. Til að kvarða áttavitann skaltu snúa tækinu í samfelldri
hreyfingu.
Nákvæmni áttavitans er takmörkuð. Rafsegulsvið,
málmhlutir og aðrir ytri þættir geta einnig haft áhrif á
nákvæmni áttavitans. Áttavitinn ætti alltaf að vera rétt
kvarðaður.