
Dagsetning, stillingar og vefþjónustuboð
Tækið getur tekið við margs konar skilaboðum sem innihalda
gögn, svo sem nafnspjöld, hringitóna, skjátákn
símafyrirtækis, dagbókarfærslur og tölvupóst. Þú getur
einnig fengið stillingar frá þjónustuveitunni þinni í
stillingaboðum.
Til að vista gögnin í skilaboðunum skaltu velja
Valkostir
og
viðkomandi valkost.
Vefþjónustuboð eru tilkynningar (t.d. nýjar fréttafyrirsagnir)
sem geta innihaldið texta eða tengil. Nánari upplýsingar um
framboð og áskrift fást hjá þjónustuveitu.