Notandastillingar
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Tölvupóstur
>
Pósthólf
, pósthólf og
Notandastillingar
.
Veldu úr eftirfarandi:
Mitt nafn — Sláðu inn nafnið þitt. Nafnið birtist í stað
tölvupóstfangsins þíns í tæki viðtakandans ef tækið styður
það.
Senda tölvupóst — Tilgreindu hvernig tölvupóstur er
sendur úr tækinu. Veldu
Strax
til að tækið tengist pósthólfinu
þegar þú velur
Senda tölvupóst
. Ef þú velur
Í næstu
tengingu
er tölvupóstur sendur þegar tengst hefur verið við
ytra pósthólfið.
Afrit til sendanda — Veldu hvort þú vilt senda afrit af
tölvupóstinum í pósthólfið þitt.
Nota undirskrift — Veldu hvort bæta eigi undirskrift við
þann tölvupóst sem þú sendir.
Tilkynning um tölvupóst — Veldu hvort þú vilt fá
vísbendingar um nýjan tölvupóst (tón, tilkynningu og tákn
um póst) þegar nýr póstur berst þér.
Eyðing tölvupósts — Veldu hvort eyða eigi tölvupósti úr
símanum eingöngu eða úr símanum og af miðlara eða hvort
spyrja eigi í hvert skipti.
Svarpóstfang — Tilgreindu tölvupóstfang sem senda á svör
við tölvupósti sem sendur er út pósthólfinu sem um ræðir.