Tengistillingar
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Tölvupóstur
>
Pósthólf
, pósthólf og
Tengistillingar
.
Stillingum fyrir móttekinn tölvupóst er breytt með því að
velja
Móttekinn póstur
og úr eftirfarandi:
Notandanafn — Til að slá inn notandanafn þitt sem
þjónustuveitan þín lætur þér í té.
Lykilorð — Sláðu inn lykilorðið þitt. Ef þú fyllir ekki út þennan
reit verður beðið um lykilorðið þegar þú reynir að tengjast
við ytra pósthólfið.
Miðlari fyrir innpóst — Færðu inn IP-tölu eða heiti
hýsimiðlarans sem tekur við tölvupóstinum.
Aðgangsstaður í notkun — Til að velja netaðgangsstað
(IAP).
Heiti pósthólfs — Færðu inn heiti fyrir pósthólfið.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
60
Gerð pósthólfs — Tilgreindu samskiptareglur tölvupósts
sem þjónustuveita ytra pósthólfsins mælir með. Valkostirnir
eru POP3 og IMAP4. Ekki er hægt að breyta þessum stillingum.
Öryggi — Veldu öryggisvalkostinn sem nota á til að tryggja
öryggi tengingarinnar við ytra pósthólfið.
Gátt — Tilgreindu gátt fyrir tenginguna.
Örugg APOP-innskráning (aðeins fyrir POP3) — Notaðu
POP3-samskiptareglur til að dulkóða sendingu lykilorða til
ytri tölvupóstþjóns meðan tengst er við pósthólfið.
Stillingum fyrir sendan tölvupóst er breytt með því að velja
Sendur póstur
og úr eftirfarandi:
Tölvupóstfangið mitt — Sláðu inn tölvupóstfangið sem
þjónustuveitan lét þér í té.
Miðlari fyrir útpóst — Sláðu inn IP-tölu eða heiti
póstþjónsins sem sendir tölvupóstinn þinn. Verið getur að þú
getir eingöngu notað útmiðlara þjónustuveitunnar.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Stillingarnar fyrir notandanafn, lykilorð, aðgangsstað, öryggi
og gátt líkjast þeim sem er að finna í mótteknum tölvupósti.