
Góð ráð við að koma á GPS-tengingu
Athugaðu stöðu gervihnattamerkja
Til að kanna hversu marga gervihnetti tækið hefur fundið, og
hvort það er að taka við upplýsingum frá gervihnöttunum,
velurðu
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
og
GPS-gögn
>
Valkostir
>
Staða gervitungla
.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
80

Ef tækið hefur fundið gervitungl birtist stika fyrir hvert þeirra
á upplýsingaskjá gervitungla. Því lengri sem stikan er, þeim
mun meiri er styrkurinn. Stikan skiptir litum þegar tækið
hefur fengið nægar upplýsingar úr merkinu frá gervitunglinu
til að geta reiknað út staðsetningu þína.
Til að sjá stöðu gervihnattanna velurðu
Breyt. útliti
.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum
gervitunglum til að geta reiknað út staðsetningu þína. Þegar
frumútreikningur hefur farið fram kann það að vera
mögulegt að reikna út staðsetningu þína með þremur
gervitunglum. Hins vegar er útreikningurinn nákvæmari
þegar fleiri gervitungl finnast.
Ef ekkert merki frá gervitungli finnst skal athuga eftirfarandi:
•
Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.
•
Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
•
Gakktu úr skugga um að höndin sé ekki yfir GPS-loftneti
tækisins.
•
Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á merkisstyrkinn.
•
Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst
að gervihnattamerki berist í gegnum þær.