Nokia N97 - Leiðarmerki

background image

Leiðarmerki

.

Með Leiðarmerki er hægt að vista upplýsingar um

staðsetningu tiltekinna staða í tækinu. Hægt er að flokka

vistaðar staðsetningar í nokkra flokka, svo sem viðskipti, og

bæta þar við öðrum upplýsingum, t.d. heimilisföngum. Hægt

er að nota vistuð leiðarmerki í samhæfum forritum, svo sem

GPS-gögnum.
GPS-hnit eru gefin upp samkvæmt alþjóðlega WGS-84

hnitakerfinu.
Veldu

Valkostir

og svo úr eftirfarandi:

Nýtt leiðarmerki — Nýtt leiðarmerki búið til. Til að óska eftir

upplýsingum um núverandi staðsetningu skaltu velja

Núv.

staðsetning

. Til að færa upplýsingar um staðsetningu inn

handvirkt skaltu velja

Slá inn

.

Breyta — Til að breyta eða bæta upplýsingum við vistað

leiðarmerki (t.d. götuheiti).

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

81

background image

Bæta við flokk — Til að bæta leiðarmerki við flokk í

Leiðarmerkjum. Veldu þá flokka sem þú vilt bæta

leiðarmerkinu í.

Senda — Til að senda eitt eða fleiri leiðarmerki í samhæfa

tölvu. Móttekin leiðarmerki eru sett í möppuna Innhólf í

Skilaboðum.
Hægt er að raða leiðarmerkjunum í fyrir fram ákveðna

flokkna og búa til nýja flokka. Hægt er að breyta og búa til

nýja flokka fyrir leiðarmerki með því að opna flipann yfir

flokka og velja

Valkostir

>

Breyta flokkum

.