Nokia N97 - Uppsetning forrita

background image

Uppsetning forrita

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri

tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er eða fá þær sendar

sem margmiðlunarskilaboð, sem tölvupóstsviðhengi eða

nota aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.
Hægt er að nota Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite

til að setja upp forrit í tækinu.
Táknin í Forritastjórnun sýna eftirfarandi:

SIS- eða SISX-forrit

Java-forrit
smáforrit
forrit sett upp á minniskortinu

forrit sett upp í gagnageymslunni

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan

hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með Symbian

Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java Verified™.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

132

background image

Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða

framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða

upplýsingar

.

Til að skoða upplýsingar um öryggisvottorð forritsins

skaltu velja

Upplýsingar:

>

Vottorð:

>

Skoða

upplýsingar

. Hægt er að stjórna notkun stafrænna

vottorða í Vottorðastjórnun.

Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða lagfæringu á forriti

er aðeins hægt að endurheimta upphaflega forritið ef

fyrir hendi er upphaflega uppsetningarskráin eða

fullkomið afrit af hugbúnaðarpakkanum sem var

fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið skaltu

fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp aftur með því

að nota upphaflegu uppsetningarskrána eða

öryggisafritið.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-

forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig um að hlaða

henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur fyrir

forritið biður tækið þig um að velja aðgangsstað.

Forritið er sett upp á eftirfarandi hátt:
1 Til að staðsetja uppsetningarskrá velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Forritastjórnun

. Að öðrum kosti skaltu

leita að uppsetningarskrám með Skráarstjóra eða velja

Skilaboð

>

Innhólf

og opna skilaboð sem innihalda

uppsetningarskrá.

2 Í forritastjórnun velurðu

Valkostir

>

Setja upp

. Í öðrum

forritum velurðu uppsetningarskrána til að hefja

uppsetninguna.

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar

um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án

rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið

viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp

forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit finnurðu það í valmyndinni og velur

það. Ef forritið er ekki með sjálfgefna möppu skilgreinda er

það sett upp í möppunni Uppsett forrit á aðalvalmyndinni.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða

fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja

Valkostir

>

Skoða notkunarskrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í einu.

Notkun fleiri en eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif á

afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að það virki

ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir

að forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu minniskorti.

Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt

að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia

Ovi Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og

setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota

skráastjórnun til að eyða uppsetningarskránum úr minni

tækisins. Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í

skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

133