Sími og SIM
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggisstillingar
>
Sími og SIM-kort
.
Veldu úr eftirfarandi:
Beiðni um PIN-númer — Þegar kveikt er á þessari stillingu
er beðið um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu.
Sum SIM-kort leyfa ekki að hægt sé að gera beiðni um PIN-
númer óvirka.
PIN-númer, PIN2-númer og Læsingarkóði — Hægt er að
breyta PIN-númeri, PIN2-númeri og læsingarnúmeri. Þessi
númer geta aðeins innihaldið tölur frá 0 til 9. Forðastu að
nota aðgangsnúmer sem líkist neyðarnúmerum, t.d. 112, til
að komast hjá því að hringja óvart í neyðarnúmer. Hafðu
samband við þjónustuveituna ef þú glatar PIN- eða PIN2-
númerinu þínu. Ef þú gleymir læsingarkóðanum skaltu hafa
samband við Nokia Care þjónustuver eða þjónustuveituna
þína.
Sjálfv. læsingartími síma — Til að koma í veg fyrir
óleyfilega notkun er hægt að láta tækið læsa sér sjálfvirkt
eftir tiltekinn tíma. Læst tæki er ekki hægt að nota fyrr en rétt
læsingarnúmer hefur verið slegið inn. Veldu
Enginn
til að
slökkva á þessari stillingu.
Læsa ef skipt um SIM-kort — Þú getur stillt tækið þannig
að beðið sé um lykilnúmer þegar óþekkt SIM-kort er sett inn
í það. Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.
Ytri símalæsing — Til að gera ytri læsingu virka eða óvirka.
Lokaður notendahópur — Hægt er að tilgreina hóp fólks
sem hægt er að hringja í og sem getur hringt í tækið
(sérþjónusta).
Staðfesta SIM-þjónustu — Hægt er að láta tækið birta
staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
129