Nokia N97 - Símtalsstillingar

background image

Símtalsstillingar

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

. Veldu

Hringistillingar

>

Símtöl

og svo úr eftirfarandi:

Senda mitt númer — Veldu

til að þeir sem þú hringir í

sjái símanúmerið þitt. Ef þú vilt nota stillingarnar sem

þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja

Stillt af

símkerfi

) (sérþjónusta).

Birta símanúmerið mitt — Veldu

til að þeir sem þú

hringir í sjái netauðkennið þitt.

Símtal í bið — Láttu tækið gera þér viðvart ef hringt er í þig

á meðan þú ert að tala í símann (sérþjónusta) eða athugaðu

hvort sú aðgerð er virk.

Netsímtal í bið — Láttu tækið gera þér viðvart ef hringt er

í þig á netinu meðan þú ert að tala í símann.

Netsímtalstónn — Veldu

Kveikt

til að láta tækið gera

viðvart ef hringt er í þig á netinu. Ef þú velur

Slökkt

færðu

aðeins tilkynningu um ósvöruð símtöl.

Hafna símtali með skilab. — Veldu að senda textaskilaboð

til að sá sem hringir í þig viti af hverju þú gast ekki svarað

símtalinu.

Texti skilaboða — Skrifaðu stöðluð textaskilaboð sem eru

send þegar þú hafnar símtali.

Eigin mynd í mót. símtali — Veldu hvort á að leyfa eða

banna að hreyfimynd sé send úr tækinu í myndsímtali.

Mynd í myndsímtali — Ef tækið hefur verið stillt á að senda

ekki hreyfimynd í myndsímtölum er hægt að velja kyrrmynd

sem birtist þess í stað.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

134

background image

Sjálfvirkt endurval — Láttu tækið gera allt að tíu tilraunir

til að hringja aftur í númer sem ekki náðist samband við. Ýttu

á hætta-takkann til að slökkva á sjálfvirka endurvalinu.

Sýna lengd símtala — Láttu tímalengd símtals birtast

meðan það fer fram.

Samantekt símtals — Láttu tímalengd símtals birtast að því

loknu.

Hraðval — Kveikt á hraðvali.

Takkasvar — Kveikt á takkasvari.

Lína í notkun — Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins ef

SIM-kortið styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift.

Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja og senda

textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum

línum, burtséð frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú velur

Lína 2

en hefur ekki gerst áskrifandi að þessari sérþjónustu

geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er valin birtist

á heimaskjánum.

Línuskipting — Láttu hindra að skipt sé á milli lína

(sérþjónusta) ef SIM-kortið styður það. Til að breyta þessari

stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.