Nokia N97 - Flutningur efnis

background image

Flutningur efnis

Hægt er að nota forritið Símaflutningur til að afrita gögn eins

og símanúmer, heimilisföng, dagbókarfærslur og myndir úr

gamla Nokia-tækinu yfir í það nýja.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

24

background image

Það fer eftir gerð tækisins hvaða efni er hægt að flytja úr því.

Ef tækið styður samstillingu er einnig hægt að samstilla gögn

milli tækja. Tækið gerir viðvart ef hitt tækið er ekki samhæft.
Ef ekki er hægt að kveikja á hinu tækinu nema SIM-kort sé í

því geturðu sett SIM-kortið þitt í það. Þegar kveikt er á tækinu

án SIM-korts er ótengda sniðið sjálfkrafa valið og flutningur

getur farið fram.
Efni flutt í fyrsta skipti

1 Til að sækja gögn úr öðru tæki í fyrsta sinn, úr tækinu

þínu, skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

>

Tengingar

>

Gagnaflutningur

>

Símaflutningur

.

2 Veldu tengigerðina sem þú vilt nota til að flytja gögn.

Bæði tækin verða að styðja tengigerðina.

3 Ef þú hefur valið Bluetooth sem tengiaðferð skaltu tengja

tækin saman. Veldu

Áfram

til að láta tækið leita að

tækjum með Bluetooth-tengingu. Veldu tækið sem þú

vilt flytja efni úr. Tækið biður þig að slá inn kóða. Sláðu

inn kóða (1-16 tölustafi að lengd) og veldu

Í lagi

. Sláðu

inn sama kóða í hitt tækið og veldu

Í lagi

. Þá eru tækin

pöruð.

Ekki er víst að sumar eldri útgáfur Nokia-tækja séu með

Símaflutningsforritið. Þá er forritið sent í hitt tækið í

skilaboðum. Símaflutningsforritið er sett upp í hinu

tækinu með því að opna skilaboðin og fylgja

leiðbeiningunum á skjánum.

4 Í þínu tæki skaltu velja efnið sem þú vilt flytja úr hinu

tækinu.

Hægt er að hætta við flutning og ljúka honum síðar.

Efnið er flutt úr minni hins tækisins og sett á samsvarandi

stað í tækinu þínu. Flutningstíminn veltur á því gagnamagni

sem er afritað.