Nokia N97 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Rafhlaðan kemur hlaðin að hluta til frá framleiðanda. Engin

þörf er á að hlaða tækið fyrirfram. Ef tækið sýnir að rafhlaðan

sé að tæmast skaltu gera eftirfarandi:
Venjuleg hleðsla

1 Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.

2 Tengdu hleðslutækið við tækið. Stöðuljósið næst USB-

tenginu lýsir á meðan rafhlaðan hleður sig.

3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan sé fullhlaðin skaltu taka

hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr

innstungunni.

Ekki þarf að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og hægt er að

nota tækið á meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg

tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist

á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Ábending: Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu þegar það er ekki í notkun. Hleðslutæki

sem er í sambandi við innstungu eyðir rafmagni þótt það sé

ekki tengt við tækið.
USB-hleðsla

Hægt er að nota USB-hleðslu ef rafmagnsinnstunga er ekki til

staðar. Með USB-hleðslu er einnig hægt að flytja gögn á

meðan tækið er hlaðið.
1 Tengdu samhæft USB-tæki við tækið þitt með samhæfri

USB-snúru.

Það fer eftir tækinu sem notað er til hleðslu hve langur

tími líður þar til hleðslan hefst.

2 Ef kveikt er á tækinu er hægt að velja úr tiltækum USB-

stillingum á skjá tækisins.

Til athugunar: Við lengri aðgerðir eða hleðslu getur tækið

eða hleðslutækið hitnað. Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef

þú telur tækið eða hleðslutækið ekki vinna rétt skaltu fara

með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.