Nokia N97 - Lyklaborð

background image

Lyklaborð

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

21

background image

Tækið er með lyklaborð í fullri stærð. Ýttu snertiskjánum upp

til að opna lyklaborðið. Í öllum forritum snýst skjárinn

sjálfkrafa úr andlitsmynd í landslagsmynd þegar lyklaborðið

er opnað.

1 Skiptitakki. Til að skipta á milli há- og lágstafa ýtirðu

tvisvar á skiptitakkann. Til að slá inn einn hástaf í

lágstafastillingu eða einn lágstaf í hástafastillingu ýtirðu

einu sinni á skiptitakkann og svo á viðeigandi stafatakka.

2 Biltakki

3 Sym-takki. Ýttu einu sinni á sym-takkann til að setja inn

sérstafi sem eru ekki á lyklaborðinu, og veldu síðan

stafinn á töflunni.

4 Virknitakki. Til að setja inn sérstafi sem eru efst á

tökkunum ýtirðu einu sinni á virknitakkann og síðan á

takkann sem þú vilt nota. Til að slá inn nokkra sérstafi í

röð ýtirðu tvisvar sinnum snöggt á virknitakkann. Til að

skipta aftur yfir í venjulega stillingu ýtirðu á

virknitakkann.

5 Bakktakki. Ýttu á bakktakkann til að eyða staf. Haltu

bakktakkanum inni til að eyða mörgum stöfum.

Stafir sem ekki eru á lyklaborðinu slegnir inn

Hægt er að slá inn ýmiss konar stafi, til dæmis stafi með

kommum. Til að slá inn "á" heldurðu sym-takkanum inni og

ýtir um leið endurtekið á A þar til rétti stafurinn birtist. Það

veltur á tungumálinu hvaða stafi er hægt að velja og í hvaða

röð þeir eru.