
Um heimaskjáinn
Á heimaskjánum geturðu opnað þau forrit sem þú notar
mest, stjórnað forritum, svo sem tónlistarspilaranum, séð
uppáhaldstengiliðina þína og séð hvort þú hefur misst af
símtölum eða fengið ný skilaboð.
Gagnvirkar heimaskjáseiningar
Til að opna klukkuforritið smellirðu á klukkuna (1).
Til að opna dagbókina eða breyta sniðum á heimaskjánum
smellirðu á dagsetninguna eða heiti sniðsins (2).
Til að skoða eða breyta tengistillingum (
), til að sjá tiltæk
þráðlaus staðarnet ef staðarnetsleit er virk, eða sjá símtöl
sem ekki var svarað, smellirðu efst í hægra hornið (3).
Til að hringja velurðu (4).
Til að opna aðalvalmyndina ýtirðu á valmyndartakkann (5).
Til að fela eða sýna efni rennirðu fingrinum yfir heimaskjáinn.
Hlutir settir á heimaskjáinn
Ef setja á hlut á heimaskjáinn velurðu
Valkostir
>
Breyta
efni
>
Valkostir
>
Bæta við efni
og velur hlutinn af
listanum.
Notkun græja getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Til að færa hlut velurðu
Valkostir
>
Breyta efni
, velur
tiltekna hlutinn og dregur hann yfir á nýja staðinn.
Hlutur fjarlægður af heimaskjánum
Veldu
Valkostir
>
Breyta efni
og hlutinn sem á að fjarlægja.
Veldu
Valkostir
>
Fjarlægja
>
Lokið
.