Nokia N97 - Um FM-sendinn

background image

Um FM-sendinn

Framboð á FM-sendi getur verið breytilegt eftir löndum.

Þegar þetta var skrifað var hægt að nota FM-sendi í

eftirfarandi löndum í Evrópu: Austurríki, Belgíu, Búlgaríu,

Tékklandi, Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Þýskalandi,

Íslandi, Írlandi, Litháen, Liechtenstein, Lúxemborg, Möltu,

Hollandi, Noregi, Portúgal, Spáni, Sviss, Svíþjóð, Tyrklandi og

Bretlandi. Nýjustu upplýsingarnar og lista yfir lönd sem eru

ekki í Evrópu er að finna á síðunni www.nokia.com/

fmtransmitter.
Með FM-sendinum er hægt að spila lög sem eru vistuð í

tækinu í öllum samhæfum FM-útvarpstækjum, svo sem

bílútvarpi eða venjulegu hljómflutningstæki.
Tíðnisvið sendisins er frá 88,1 til 107,9 MHz.
Hægt er að nota FM-sendinn þótt hann sé í allt að 2 metra

fjarlægð. Hindranir, svo sem veggir, önnur raftæki eða

almennar útvarpsstöðvar, geta truflað sendinguna. FM-

sendirinn getur truflað nálæga FM-móttakara sem eru á sömu

tíðni. Til að forðast truflun skal alltaf leita að lausri FM-tíðni

á móttakaranum áður en FM-sendirinn er notaður.
Ekki er hægt að nota FM-sendinn um leið og FM-útvarpið í

tækinu er notað.