
Fast númeraval
Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
og
Valkostir
>
SIM-númer
>
Tengil. í föstu nr.vali
.
Með föstu númeravali er hægt að takmarka símtöl úr tækinu
þannig að aðeins sé hægt að hringja í ákveðin símanúmer.
Það styðja ekki öll SIM-kort fast númeraval. Nánari
upplýsingar fást hjá þjónustuveitu.
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo
sem útilokun, lokaður notendahópur og fast númeraval)
kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið. Útilokun og flutningur símtala getur ekki
verið virkt samtímis.
Nauðsynlegt er að hafa PIN2-númer til að kveikja og slökkva
á föstu númeravali og breyta tengiliðum í föstu númeravali.
Þú færð PIN2-númerið hjá þjónustuveitunni.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Virkja fast númeraval — Kveikja á föstu númeravali.
Slökkva á föstu nr.vali — Slökkva á föstu númeravali.
Nýr SIM-tengiliður — Sláðu inn símanúmer og nafn
tengiliðar sem leyfilegt er að hringja í.
Bæta við úr Tengiliðum — Afrita tengilið af
tengiliðalistanum í listann yfir fast númeraval.
Til að geta sent textaskilaboð til SIM-tengiliða í föstu
númeravali þarftu einnig að bæta númeri
skilaboðamiðstöðvarinnar við listann.