Þráðlausar staðarnetstengingar
Til að geta notað þráðlaust staðarnet þarftu að búa til
netaðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet. Notaðu
aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem krefjast tengingar við
internetið.
Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú býrð til
gagnatengingu með því að nota netaðgangsstað. Þráðlausa
staðarnetstengin er rofin þegar þú lokar gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali stendur
eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að tengjast
við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en
nokkur forrit geta hins vegar notað sama aðgangsstaðinn.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt fyrir að
tækið sé í ótengdu sniði (ef það er í boði). Mundu að fara að
öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og notar
þráðlausa staðarnetstengingu.
Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem auðkennir tækið þitt
skaltu opna númeravalið og slá inn *#62209526#.