Nokia N97 - Um þráðlaust staðarnet

background image

Um þráðlaust staðarnet

Til að geta notað þráðlaust staðarnet verður slíkt net að vera

til staðar og tækið að vera tengt þráðlausu staðarneti. Sum

þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf að fá aðgangsorð

hjá þjónustuveitunni til að geta tengst þeim.
Notkun þráðlauss staðarnets kann að vera takmörkuð í

einhverjum löndum. Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota

þráðlaust staðarnet innandyra. Nánari upplýsingar fást hjá

yfirvöldum á staðnum.
Aðgerðir sem byggjast á þráðlausu staðarneti eða mega

keyra í bakgrunni á meðan aðrar aðgerðir eru notaðar ganga

á rafhlöðu tækisins og draga úr endingu hennar.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum

dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar

staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni

á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án

heimildar.