
Aðgangsstaðahópar búnir til
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Nettengileiðir
.
Í sumum forritum er hægt að nota aðgangsstaðahópa til að
tengjast netinu.
Til að velja ekki einungis einn aðgangsstað í hvert sinn sem
tækið tengist netinu er hægt að búa til hóp sem inniheldur
ýmsa aðgangsstaði til að tengjast netinu og tilgreina í hvaða
röð á að nota aðgangsstaðina.
Til dæmis er hægt að bæta aðgangsstöðum fyrir þráðlaust
staðarnet og pakkagögn við aðgangsstaðahópinn og nota
hópinn til að vafra á netinu. Ef þráðlaust staðarnet er látið
hafa forgang tengist tækið netinu um þráðlausa staðarnetið,
ef það er tiltækt, en um pakkagagnatenginu að öðrum kosti.
Nýr aðgangsstaðahópur er búinn til með því að velja
Valkostir
>
Sýsla
>
Ný nettengileið
.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
67

Til að bæta aðgangsstað við aðgangsstaðahóp velurðu
hópinn og
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
. Til að afrita
aðgangsstað úr öðrum hópi velurðu hópinn, smellir á
viðkomandi aðgangsstað, ef hann er ekki þegar auðkenndur,
og velur
Valkostir
>
Skipuleggja
>
Afrita á annan stað
.
Til að breyta forgangsröð aðgangsstaða innan hópsins
velurðu
Valkostir
>
Skipuleggja
>
Breyta forgangi
.