
Um Bluetooth-tengingar
Með Bluetooth-tækni er hægt að koma á þráðlausri tengingu
við önnur samhæf tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og
bílbúnað.
Hægt er að nota tenginguna til að senda myndir, myndskeið,
tónlist, hljóðskrár og minnismiða, senda skrár frá samhæfri
tölvu og til að prenta myndir með samhæfum prentara.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til
samskipta þurfa tækin ekki að vera í beinni sjónlínu hvert við
annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan við 10 metra (33
feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á
tengingunni vegna hindrana eins og veggja eða annarra
raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR
sem styður eftirfarandi snið: Dial-Up Networking (DUN),
Object Push Profile (OPP), File Transfer Profile (FTP), Hands
Free Profile (HFP), Headset Profile (HSP), Basic Imaging Profile
(BIP), Remote SIM Access Profile (SimAP), Device
Identification Profile (DI), Phonebook Access Profile (PBAP),
Generic Audio/Video Distribution Profile (GAVDP), Audio/
Video Remote Control Profile (AVRCP), Advanced Audio
Distribution Profile (A2DP). Til að tryggja samvirkni milli
annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota
aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund.
Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um
samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans
og draga úr endingu hennar.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að tengja það við leyfð
tæki.