Ytri SIM-stilling
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Bluetooth
.
Áður en hægt er að velja ytri SIM-stillingu verða tækin að vera
pöruð saman og kveikja þarf á pöruninni í hinu tækinu. Við
pörun skal nota 16 stafa aðgangskóða og stilla hitt tækið á
leyfilegt.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
72
Til að nota ytri SIM-stillingu með samhæfum bílbúnaði er
kveikt á Bluetooth og svo á ytri SIM-stillingu í tækinu.
Kveiktu á ytri SIM-stillingu í hinu tækinu.
Þegar kveikt er á ytri SIM-stillingu í tækinu birtist
Ytra SIM
á
heimaskjánum. Slökkt er á tengingunni við þráðlausa
símkerfið, og það gefið til kynna með í sendistyrksvísinum.
Þá er ekki hægt að nota þjónustu SIM-kortsins eða valkosti
þar sem tenging við símkerfið er nauðsynleg.
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins
hægt að hringja og svara símtölum með samhæfum aukahlut
sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt að
hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið. Eigi að hringja úr
tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu
hefur verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.
Slökkt er á ytri SIM-stillingunni með því að ýta á rofann og
velja
Loka ytri SIM
.