
Gagnatengingar og aðgangsstaðir
Tækið styður pakkagagnatengingar (sérþjónusta), líkt og
GPRS í GSM-símkerfi. Þegar tækið er notað í GSM- og UMTS-
símkerfum er hægt að hafa margar gagnatengingar í gangi
samtímis og aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu. Í
UMTS-símkerfinu er ekki slökkt á gagnatengingu þegar símtal
er í gangi.
Einnig er hægt að koma á gagnatengingu við þráðlaus
staðarnet. Aðeins er hægt að tengjast við einn aðgangsstað
fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en nokkur forrit geta hins
vegar notað sama aðgangsstaðinn.
Til að koma á gagnatengingu verður aðgangsstaður að hafa
verið valinn. Hægt er að tilgreina mismunandi gerðir
aðgangsstaða, líkt og:
•
MMS-aðgangsstað til að senda og taka við
margmiðlunarskilaboðum,
•
Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka við
tölvupósti og tengjast við internetið
Upplýsingar um hvaða gerð aðgangsstaðar þarf að nota fyrir
tiltekna þjónustu fást hjá þjónustuveitu. Þjónustuveitan
gefur upplýsingar um pakkagagnaþjónustu og áskrift að
henni.