Nokia N97 - Stillingar símkerfis

background image

Stillingar símkerfis

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

Símkerfi

.

Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-

símkerfanna. GSM-símkerfi eru sýnd með . UMTS-símkerfi

eru sýnd með

.

Virk HSDPA-tenging (high-speed downlink packet access

connection) (sérþjónusta) er sýnd með

.

Veldu úr eftirfarandi:
Símkerfi — Veldu hvaða kerfi þú vilt nota. Ef þú velur

Tvöfalt

kerfi

skiptir tækið sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-

símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar og reikisamninga

á milli þjónustuveitna. Þjónustuveitan veitir nánari

upplýsingar um reikigjöld. Þessi valkostur sést aðeins ef

þjónustuveitan styður hann.
Reikisamningur er samningur milli tveggja eða fleiri

þjónustuveitna um að leyfa notendum einnar veitunnar að

nota þjónustu hinna.

Val á símafyrirtæki — Veldu

Sjálfvirkt

til að stilla tækið

þannig að það leiti að og velji eitt af þeim símkerfum sem eru

í boði, eða

Handvirkt

til að velja símkerfi af lista. Ef tengingin

rofnar við símkerfið, sem valið var handvirkt, gefur tækið frá

sér hljóðmerki og biður um að símkerfi sé valið aftur.

Símkerfið sem er valið verður að vera með reikisamning við

heimakerfið þitt.

Um endurvarpa — Láttu tækið gefa til kynna þegar það er

notað í farsímakerfi sem byggir á örbylgjutækni (MCN) og til

að virkja móttöku upplýsinga frá endurvarpa.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

64