Nokia N97 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er ætlað til notkunar með

BP-4L rafhlöðu. Hugsanlega verða hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta

tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum:

AC-10. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð

klóarinnar er auðkennd með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C, K eða UB.

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún

gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um

rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal

endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með

þessu tæki.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan

tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það

aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til

hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan

er fjarlægð.

Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar

það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar

sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og

smátt ef hún er ekki í notkun.

Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu

frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma

rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið.

Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem

mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á

rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst

þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið

skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum

í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar

mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata eða tæta rafhlöður. Fari

rafhlaðan að leka skaltu forðast að hún komist í snertingu húð eða augu. Gerist það skal

hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna með vatni eða leita læknisaðstoðar.

Skemmdir. Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga

að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana. Rafhlöður geta

sprungið ef þær skemmast.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

140

background image

Rétt notkun. Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Röng notkun

rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða sprengihættu, eða aðra hættu. Ef þú missir

tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að rafhlaðan hafi

skemmst, skaltu fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að

nota hana. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar

sem lítil börn ná ekki til.