Nokia N97 - Ökutæki

background image

Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki

rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf,

rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða hraðastýringu og loftpúðakerfi.

Frekari upplýsingar er að finna hjá framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Röng

uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga skal reglulega

úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt.

Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og

tækið, hluta úr því eða aukabúnað með því. Hafa skal í huga að loftpúðar blásast upp af

miklu afli. Ekki koma tækinu eða fylgihlutum fyrir á loftpúðasvæðinu.

Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra

fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn flugvélarinnar og kann að vera

ólögleg.