Nokia N97 - Heyrnartæki

background image

Heyrnartæki
Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki.

Heyrnartæki

Viðvörun:

Nauðsynlegt er að slökkva á Bluetooth til að hægt sé að nota heyrnartæki með tækinu.

Gerð farsímatækisins er í samræmi við reglur alríkisnefndarinnar um fjarskipti varðandi

samhæfni við heyrnartæki. Samkvæmt þessum reglum er M3 hljóðnemi eða hærri

nauðsynlegur. M-gildið, sem sýnt er á tækinu, vísar til lægri styrks útvarpsbylgna. Hærra

M-gildi gefur yfirleitt til kynna að mörk útvarpsbylgna tækisins séu lægri, sem getur aukið

líkurnar á því að tækið vinni vel með vissum heyrnartækjum. Sum heyrnartæki verða

síður fyrir áhrifum af truflunum en önnur. Vinsamlega hafið samband við

heyrnarsérfræðing til að ákvarða M-einkunn heyrnartækisins og hvort heyrnartækið virki

með þessu tæki. Nánari upplýsingar um þetta er að finna á www.nokiaaccessibility.com.

Þetta tæki hefur verið prófað og samþykkt til notkunar með heyrnartækjum vegna

einhvers hluta þeirrar þráðlausu tækni sem það notar. Hins vegar getur verið að nýrri

þráðlaus tækni sé notuð í tækinu sem ekki hefur verið prófuð ennþá fyrir notkun með

heyrnartækjum. Það er mikilvægt að prófa ólíka eiginleika tækisins vandlega og á ólíkum

stöðum, með heyrnartækið í gangi, til að kanna hvort einhver truflandi hávaði heyrist.

Ráðfærðu þig við þjónustuveituna varðandi reglur um skil og endurgreiðslur og til að fá

upplýsingar um samhæfni við heyrnartæki.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

142