Nokia N97 - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera sprengihætta. Farðu eftir

leiðbeiningum sem gilda hverju sinni. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið

sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á tækinu

á eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal

takmarkanir í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer

fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem kann að vera

sprengihætta eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði þar sem ráð

gæti verið að slökkva á vél bifreiðar, í farrýmum skipa, í efnageymslum eða við

efnaflutninga og þar sem efni eða agnir, s.s. ryk, sót eða málmduft gæti verið í lofti. Þú

ættir að leita upplýsinga hjá framleiðendum farartækja sem nota jarðgas (líkt og própan

eða bútan) til að ákvarða hvort hægt sé að nota þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.