Nokia N97 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun í

hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 1,5 sentimetrar (5/8

úr tommu) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið

á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu

að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.

Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf góða tengingu við símkerfið.

Sending gagnaskráa eða skilaboða getur tafist þar til slík tenging er tiltæk. Fylgið

ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má geyma

kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu því

upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.